Erlent

Vísindakirkjan fyrir rétt

Vísindakirkjan kann að verða dæmd til að vera leyst upp í Frakklandi í réttarhaldi sem hófst í París í gær. Sjö af æðstu forsvarsmönnum safnaðarins í Frakklandi eru ákærðir fyrir skipulögð svik og ólöglega lyfjastarfsemi.

Vísindakirkjan er flokkuð sem sértrúarsöfnuður í Frakklandi. Ákærurnar eru sprottnar upp af kvörtunum fólks sem hefur yfirgefið söfnuðinn. Þar á meðal er ung kona, sem segir söfnuðinn hafa haft af sér um 21.000 evrur í gjöld fyrir námskeið, bækur og „hreinsunarpakka".

- aa






Fleiri fréttir

Sjá meira


×