Erlent

Meintur morðingi kvensjúkdómalæknis fundinn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mótmælendur koma saman við dómshúsið í Wichita í mars síðastliðnum til að mótmæla fóstureyðingum. Mynd/ AFP.
Mótmælendur koma saman við dómshúsið í Wichita í mars síðastliðnum til að mótmæla fóstureyðingum. Mynd/ AFP.
Lögreglan í Wichita í Kansasfylki í Bandaríkjunum hefur handtekið mann sem hún grunar um að hafa myrt George Tiller, lækni sem er þekktur fyrir að framkvæma fóstureyðingar á konum sem ganga með mjög þroskuð fóstur.

Tiller var skotinn til bana við guðsþjónustu í morgun og hafði lögreglan leitað morðingjans, sem flúði vettvang á bíl. Mótmælendur fóstureyðinga höfðu lengi fylgst með Tiller, en læknastofa hans er ein fárra í heiminum þar sem fóstri er eytt eftir að kona hefur gengið með í 21 viku.

Árið 1991 hópuðust þúsundir aðgerðasinna til heimaborgar Tillers til að taka þátt í mótmælum sem einkenndust af borgaralegri óhlýðni og fjöldahandtökum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×