Erlent

Ökumaðurinn sem ók á Tsvangirai handtekinn

Morgan Tsvangirai kom af spítala í dag.
Morgan Tsvangirai kom af spítala í dag.
Ökumaður bifreiðarinnar sem ók á bifreið Morgans Tsvangirai, forseta Zimbabwe, með þeim afleiðingum að konan hans beið bana hefur verið handtekinn. Ökumaðurinn starfaði fyrir bandarísk stjórnvöld og sá um að flytja lyf gegn alnæmisveirunni. Susan Tsvangiarai, eiginkona Morgans, lést í slysinu en þau hjónin voru á ferð í syðri hluta Harare, sem er höfuðborg Zimbabwe. Morgan Tsvangirai hlaut áverka á höfði og hálsi en hann var útskrifaður af spítala í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×