Erlent

Rúmur þriðjungur Breta drekkur of mikið

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Meira en þriðjungur Breta drekkur of mikið áfengi samkvæmt opinberum tölum sem gerðar voru heyrum kunnar í gær. Heilbrigðisstarfsmenn hafa gefið út að eðlileg áfengisneysla teljist þrír til fjórir drykkir á dag fyrir karlmenn og tveir til þrír fyrir konur.

Miðað við það drekka 37 prósent fólks of mikið áfengi að minnsta kosti einn dag í viku og 20 prósent drekka meira en tvöfalt viðmiðunarmagnið. Þetta sætir kannski engum furðum þar sem sama könnun leiddi í ljós að innan við 40 prósent fólks hafði hugmynd um hve mikið áfengi sé innan viðmiðunarmarkanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×