Erlent

Skaut úr veiðiriffli gegnum framrúðu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Ótrúlegt þykir að 18 ára ökumaður í bænum Vinderup á Jótlandi hafi sloppið ómeiddur eftir að rúmlega fimmtugur maður skaut nokkrum skotum úr veiðiriffli gegnum framrúðu bíls hans. Skotmaðurinn sat í bíl sínum úti í vegkanti og steig út þegar hinn bíllinn kom akandi í átt að honum. Hann mundaði riffilinn og skaut nokkrum sinnum í framrúðuna af tiltölulega stuttu færi. Kúlur og glerbrot þutu rétt fram hjá ökumanninum sem slapp með skrekkinn. Lögregla handtók skotmanninn skömmu síðar og segir varðstjóri að hann hafi átt í deilum við föður mannsins, sem hann skaut á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×