Breskt vikublað sagt staðið að hlerunum 10. júlí 2009 04:45 Forsíðufrétt Guardians Vikublaðið News of the World á borðinu fyrir framan. nordicphotos/AFP
Breska vikublaðið News of the World, sem er í eigu ástralska fjölmiðlajöfursins Ruberts Murdochs, er sagt hafa stundað hleranir í stórum stíl. Blaðið greiddi einkasnuðrurum fyrir að útvega sér talskilaboð úr farsímum fólks, sem síðan voru notuð til að komast yfir bankareikningsupplýsingar, einkasímanúmer og fleiri upplýsingar. Annað breskt dagblað, Guardian, sem þykir heldur vandara að virðingu sinni þótt ekki seljist það jafn vel, ljóstraði upp um þetta í gær. Yfirmaður lögreglunnar í London, Paul Stephenson, lýsti því í kjölfarið yfir að málið yrði rannsakað sem lögreglumál. Gordon Brown forsætisráðherra segir málið vekja alvarlegar spurningar sem augljóslega þurfi að fá svör við. „Við munum gera ítarlega rannsókn og fylgja málinu eftir,“ segir Stephenson lögreglustjóri. Samkvæmt fréttinni í Guardian beindu blaðamenn News of the World spjótum sínum meðal annars að leikkonunni Gwyneth Palthrow, söngvaranum George Michael, borgarstjóranum Boris Johnson og sjónvarpskokkinum Nigellu Lawson, auk stjórnmálamanna úr þremur stjórnmálaflokkum. Blaðið hefur, samkvæmt Guardian, greitt þremur fórnarlamba sinna með leynd samtals meira en milljón pund, eða rúmlega 200 milljónir króna, til að komast hjá dómsmálum vegna þessa athæfis. Fréttin í Guardian vekur enn á ný upp gamla umræðu um siðferði breskra dagblaða, sem eiga í grimmilegri samkeppni um bæði lesendur og fréttir. Kræsileg frétt um þekktan einstakling getur skilað blaðinu gríðarlegri sölu, og því er oft kostað miklu til að útvega fréttir á undan öðrum. Breska persónuverndin segir að árið 2006 hafi hún afhent lögreglunni upplýsingar um að 31 blaðamaður hjá News of the World og systurblaði þess, dagblaðinu The Sun, hafi átt í viðskiptum með ólöglega fengnar persónuupplýsingar. Árið 2007 féll síðan dómur í máli Clive Goodmans, sem var yfirmaður þeirrar deildar blaðsins sem sér um fréttir af konungsfjölskyldunni. Hann hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir að hlera farsíma hjá starfsfólki konungsfjölskyldunnar. Samstarfsmaður hans, Glenn Mulcaire einkaspæjari, hlaut sex mánaða fangelsisdóm.
Mest lesið Maðurinn fundinn Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Þúsunda saknað og tíminn að renna út Erlent Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Innlent Fleiri fréttir Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Sjá meira