Erlent

Nýjar aftökuaðferðir í Kína

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Bekkur, notaður við aftökur.
Bekkur, notaður við aftökur. Mynd/Netið

Kínverjar hyggjast taka upp þá aðferð að sprauta banvænu eitri í þá sakamenn, sem ætlunin er að taka af lífi, frekar en að skjóta þá. Þessi nýja aðferð á að vera komin í gagnið í fangelsum um allt Kína fyrir næstu áramót, segir í tilkynningu frá hæstarétti landsins. Sérþjálfaðir lögreglumenn, sem starfa fyrir dómstólana, verða fengnir til þess að framkvæma aftökur með nýja laginu og með þeim verður læknir sem hefur yfirumsjón með lyfjagjöfinni og staðfestir að lokum dauða sakamannsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×