Erlent

Lögregla tekur YouTube í sína þjónustu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Lögreglan í Cornwall í Bretlandi hefur nú tekið myndskeiðavefinn YouTube í þjónustu sína við að hafa uppi á eftirlýstum glæpamönnum. Birtir lögreglan myndskeið úr öryggismyndavélakerfi neðanjarðarlestanna sem sýnir mann grípa í konu og halda henni. Konunni tókst að slíta sig lausa og forða sér en lögregla leitar nú mannsins og hefur óskað eftir því að þeir notendur YouTube, sem borið geta kennsl á manninn, gefi sig fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×