Erlent

Ár frá skjálftanum mikla í Kína

Óli Tynes skrifar
Frá borginni Beichuan.
Frá borginni Beichuan. Mynd/AP

Ár er nú liðið frá því níutíuþúsund manns fórust í jarðskjálfta í Sichuan héraði í Kína. Fimm milljónir manna misstu heimili sín.

Margar borgir urðu hreinlega óbyggilegar eftir skjálftann. Meðal þeirra var Beichuan þar sem meðfylgjandi mynd var tekin.

Þar eru nánast öll hús skökk á grunnum sínum eða þá jöfnuð við jörðu. Jarðskjálftinn mældist átta á Richter kvarða.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×