Erlent

Óbreyttur borgari og þrír hermenn myrtir í Afganistan

Frá Afganistan.
Frá Afganistan. Mynd/AP
Almennur borgari og þrír NATO-hermenn féllu þegar bílsprengja sprakk í austurhluta Afganistans í dag. Til viðbótar særðist einn hermaður. Sprengjan sprakk þegar hryðjuverkamaður keyrði Toyota Corolla bifreið á bílalest hermannanna.

Bílasprengjur og sprengjur sem komið hefur verið fyrir í vegköntum hefur fjölgað umtalsvert í Afganistan undanfarna mánuði. 172 hermenn NATO-ríkjanna féllu í slíkum árásum í fyrra og mun flelri óbreyttir borgarar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×