Erlent

Allar norðurlandaþjóðirnar keppa til úrslita í Eurovision

Alexander Rybak keppandi Noregs hefur vakið mikla athygli en hann fór áfram í kvöld ásamt níu öðrum þjóðum.
Alexander Rybak keppandi Noregs hefur vakið mikla athygli en hann fór áfram í kvöld ásamt níu öðrum þjóðum. MYND/GETTYIMAGES
Alexander Rybak sem keppir fyrir Noreg í Eurovision komst áfram í úrslitin sem fara fram á laugardagskvöldið. Alexander hefur vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu, ekki síst hjá okkur íslendingum. Noregur komst áfram ásamt níu öðrum þjóðum. Þar með er ljóst hvaða tuttugu og fimm þjóðir það verða sem keppa í úrslitunum. Allar norðurlandaþjóðirnar fimm keppa í til úrslita því Danmörk fór einnig áfram í kvöld. Í gær fóru Svíþjóð, Finnland og Ísland áfram.

Kvöldið í kvöld var gríðarlega skemmtilegt og mikil spenna ríkti í salnum þegar kynnar kvöldsins lásu upp þau lönd sem komust áfram. Þær þjóðir sem komust áfram eru eftirfarandi:

Aserbaídjan, Króatía, Úkraína, Litháen, Albanía, Moldovía, Danmörk, Eistland, Noregur og Grikkland

Á þriðjudaginn komust þessar þjóðir áfram:

Tyrkland, Svíþjóð, Ísrael, Portúgal, Malta, Finnland, Bosnía-Hersegóvenía, Rúmenía, Armenía Ísland.

Þessi lönd munu því keppa til úrslita ásamt Frakklandi, Rússlandi, Þýskalandi, Bretlandi og Spáni en þessi lönd fóru beint inn í úrslitin.

Þess bera að geta að Ísland er sjöunda atriðið á svið í úrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×