Eldsneyti sett á eldflaugina 3. apríl 2009 04:30 Obama ræddi við forseta Suður-Kóreu í London og taldi nauðsynlegt að koma á friði og stöðugleika á Kóreuskaga.Fréttablaðið/ap
Norður-Kóreumenn hafa byrjað að setja eldsneyti á eldflaug sem þeir áforma að skjóta út yfir Kyrrahaf á næstunni. Þetta fullyrðir Bandaríkjaher. Hægt er að skjóta eldflauginni á loft þremur til fjórum dögum eftir að byrjað er að dæla á hana eldsneyti. Barack Obama Bandaríkjaforseti ræddi málið við Lee Myun-bak, forseta Suður-Kóreu, í London í gær, þar sem G20-fundurinn er haldinn. Þeir sammæltust um þörfina á samræmdum viðbrögðum yrði af skotinu. Obama hefur sagt að skjóti Norður-Kóreumenn eldflauginni á loft verði litið á það sem ögrun sem kalli á viðbrögð öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Norður-Kóreumenn segjast með skotinu ætla að koma gervihnetti á braut um jörðu. Aðrar þjóðir telja tilganginn með skotinu fyrst og fremst vera að prófa nýja tegund langdrægra flugskeyta. Skjóta á flauginni yfir Japan og hafa Japanar hótað því að skjóta hana niður þegar hún berst að ströndum þeirra. Þeir munu þegar hafa gert varúðarráðstafanir til að bregðast við því ef brak úr flauginni skyldi falla þar til jarðar. Norður-Kóreumenn segja að það myndi jafngilda stríðsyfirlýsingu að skjóta flaugina niður og hóta því að eldi og brennisteini muni rigna yfir Japan verði það gert. - sh
Mest lesið Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Fleiri fréttir Seinfeld og Friends-leikari látinn Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Sjá meira