Viðurkennir gáleysisleg orð 22. júlí 2009 07:15 Taro Aso Forsætisráðherrann var þungur á brún er hann rauf þing. fréttablaðið/AP
Japan, AP Taro Aso, forsætisráðherra Japans, rauf þinghald neðri deildar japanska þingsins í gær og boðaði til kosninga í næsta mánuði. Skoðanakannanir benda til þess að uppstokkunar sé að vænta í japönskum stjórnmálum, þar sem Frjálsyndi lýðræðisflokkurinn hefur verið ráðandi afl í meira en hálfa öld. Aso viðurkenndi að hann og flokkur hans væru í erfiðri stöðu, bæði vegna erfiðs efnahagsástands en einnig vegna þess hve oft hann sjálfur hefur misst út úr sér fljótfærnisleg ummæli: „Vegna gáleysislegra orða minna hefur almenningur misst trúna á mér og stjórninni. Mér þykir þetta afar leitt.“ Eftir að hafa rofið þing gagnrýndi hann þó harðlega Lýðræðisflokk Japans, sem er stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn. Aso sagði flokkinn ekki hafa neina sjálfstæða stefnu í grundvallarmálum heldur nærast eingöngu á óvinsældum stjórnarinnar. „Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn sem getur stjórnað Japan af ábyrgð,“ sagði hann á blaðamannafundi í gær. Aso er þriðji maðurinn sem gegnt hefur embætti forsætisráðherra Japans á jafnmörgum árum. Óvinsældir hans hafa orðið til þess að sumir þungavigtarmenn í flokknum hafa reynt að steypa honum af stóli.- gb
Mest lesið Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Sjá meira