Erlent

Skriftir eru ekki sálfræðimeðferð segir Vatíkanið

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Biskupar hlýða á skriftir skjólstæðinga sinna í Vatíkaninu.
Biskupar hlýða á skriftir skjólstæðinga sinna í Vatíkaninu.

Ferð í skriftastólinn með tilheyrandi syndajátningum jafnast ekki á við sálfræðimeðferð. Vatíkanið hefur nú kveðið upp úrskurð um þetta og gerði erkibiskupinn Mauro Piacenza það að umtalsefni sínu í útvarpsviðtali nú í vikunni. Þar kom einnig fram að æ færri leituðu nú til presta kaþólsku kirkjunnar til að játa syndir sínar og þiggja aflausn þeirra. Piacenza vildi þó ekki meina að þetta tengdist eingöngu hnignandi siðferði heldur væri því einnig um að kenna að prestum kaþólskra hefði einfaldlega fækkað í mörgum löndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×