Erlent

Einn látinn af völdum Andrésar

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Sjór flæddi um götur Acapulco og lentu margir í vandræðum við að komast leiðar sinnar.
Sjór flæddi um götur Acapulco og lentu margir í vandræðum við að komast leiðar sinnar. MYND/Reuters

Einn er látinn í Acapulco í Mexíkó eftir að fellibylurinn Andrés skall á af fullum þunga í gær. Sjór flæddi um götur borgarinnar og neyðarástandi var lýst yfir á strandlengjunni milli borganna Manzanillo og Cabo Corrientes. Spár herma að vindhraði Andrésar minnki töluvert næsta sólarhringinn en að sögn fellibyljamiðstöðvar Bandaríkjanna í Miami stefnir hann nú í norðvestur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×