Keppni harðnar um sjö undur veraldar 22. júlí 2009 07:00 Kilimanjaro Þetta tignarlega fjall í Afríku er meðal þeirra náttúruundra sem hvað merkilegust þykja.nordicphotos/AFP
Bretland, ap Búist er við því að milljarður manna taki þátt í alþjóðlegri net- og símakosningu um það, hvaða sjö náttúrufyrirbæri teljast merkust hér á jörð. Í vikunni var skýrt frá því, hvaða 28 undur eru komin í úrslitakeppnina. „Þessari samkeppni er ætlað að stuðla að því að við kunnum betur að meta – og þekkjum betur – umhverfi okkar, ekki aðeins í okkar eigin landi heldur úti um allan heim,“ segir svissneski ævintýramaðurinn Bernard Weber, sem er frumkvöðull kosningarinnar. „Ef við viljum að börnin okkar varðveiti eitthvað, þá þurfum við fyrst að kunna að meta það.“ Alls var 261 náttúrufyrirbæri víðs vegar um heim tilnefnt í keppnina. Í fyrri umferð kosningarinnar komust 77 þeirra í undanúrslit, og nú hefur hópur sérfræðinga valið 28 þeirra í endanlegu úrslitakeppnina. Hægt er að greiða atkvæði á vefsíðunni www.new7wonders.com, eða símleiðis. Úrslit verða þó ekki endanlega ljós fyrr en árið 2011. Árið 2007 var greint frá úrslitum í sams konar keppni um sjö manngerð undur veraldar, sem áttu að leysa af hólmi hin fornu sjö undur veraldar, sem þekkt eru úr mannkynssögunni. Niðurstaðan þá varð sem hér segir: Taj Mahal á Indlandi, Chichen Itza í Mexíkó, Kristsstyttan í Brasilíu, Kolosseum á Ítalíu, Kínamúrinn í Kína, Petra í Jórdaníu og Machu Picchu í Perú. Samkeppnin var óneitanlega hörð, því hvorki píramídarnir miklu í Gísa, stytturnar á Páskaeyjum, Stonehenge á Bretlandi né Eiffel-turninn í París hlutu náð kjósenda.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira