Segir hervald tilgangslaust 24. júlí 2009 07:15 Biden í Georgíu Við komuna til Tíblisi bauð Saakashvili forseti Biden upp í glerhvelfinguna efst í forsetabústaðnum.fréttablaðið/AP
Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, ráðleggur Georgíustjórn eindregið að reyna ekki að fara með hervaldi gegn Rússum til að endurheimta héruðin Suður-Ossetíu og Abkasíu. „Það er dapurleg staðreynd, en satt engu að síður, að engin hernaðarleið er opin til endursameiningar,“ sagði Biden í heimsókn sinni til Georgíu í gær. Eina leiðin væri að bjóða upp á friðvænlegt og blómstrandi mannlíf í Georgíu. Hins vegar bætti hann því við að Bandaríkin myndu styðja Georgíu til að endurheimta héröðin, svo fremi sem frelsi og lýðræði verði í hávegum haft í Georgíu. Biden hefur verið á ferðalagi um fyrrverandi Sovétlýðveldi nú í vikunni, hélt fyrst til Úkraínu og síðan til Georgíu. Í báðum löndunum hafði hann sama boðskap að færa: Bandaríkin muni veita þessum löndum fullan stuðning gagnvart hugsanlegri afskiptasemi Rússlands. Í Georgíu tók hann fram í gær, að þótt Bandaríkin séu núna að reyna að bæta samskiptin við Rússland, þá muni það ekki bitna á samskiptum Bandaríkjanna og Georgíu. Meðan Biden ferðast um Kákasuslöndin hefur Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, verið á ferðalagi í Asíu, þar sem hún hefur meðal annars gagnrýnt bæði Búrma og Norður-Kóreu. Í gær var hún í Taílandi og sagði að Norður-Kóreustjórn ætti enga vini lengur, sem styddu kjarnorkuáform hennar. Frá utanríkisráðuneyti Norður-Kóreu bárust hins vegar eins konar svör, þar sem gert var lítið úr Clinton og henni sendar háðsglósur. Hún var sögð „skrýtin kona“ sem ýmist lítur út eins og grunnskólastelpa eða gömul kona í verslunarferð. Ri Hung Sik, talsmaður samninganefndar Norður-Kóreu, sagði enn fremur stefnu Bandaríkjanna gagnvart Norður-Kóreu einkennast af djúpstæðu hatri. „Sex ríkja viðræðunum er lokið,“ sagði hann, og fullyrti að Norður-Kórea muni ekki taka þátt í frekari viðræðum um kjarnorkumál sín við Bandaríkin, Kína, Rússland, Japan og Suður-Kóreu. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira