Erlent

Friðargæsluliði drepinn í Darfur

Rodolphe Adada, fulltrúi friðargæsluliðs Afríkusambandsins og Sameinuðu þjóðanna í Darfur, segir að málið sé litið afar alvarlegum augum.
Rodolphe Adada, fulltrúi friðargæsluliðs Afríkusambandsins og Sameinuðu þjóðanna í Darfur, segir að málið sé litið afar alvarlegum augum.
Alþjóðlegur friðargæsluliði var drepinn í Darfur-héraði í Súdan í gær þegar hann steig út úr bifreið fyrir utan heimili sitt. Fjöldi byssumanna réðst að honum.

Rodolphe Adada, fulltrúi friðargæsluliðs Afríkusambandsins og Sameinuðu þjóðanna í Darfur, segir að málið sé litið afar alvarlegum augum. „Árás gegn friðargæsluliðum eru stríðsglæpir."

Talið er að allt að 300 þúsund hafi látist og tvær milljónir manna flúið heimili sín á síðustu ár vegna átakanna í Darfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×