Erlent

Búist við öngþveiti í London

Búist er við öngþveiti á strætum Lundúnaborgar í dag en starfsmenn í neðanjarðarlestakerfinu víðfræga hófu verkfallsaðgerðir í nótt og hafa þúsundir lagt niður vinnu sína. Starfsmennirnir krefjast betri launa og fóru samningaviðræður á milli deiluaðila út um þúfur í gærkvöldi.

Verkfallið mun standa í tvo sólarhringa og vonast borgaryfirvöld til þess að aðrar samgönguleiðir í borginni muni standa undir aukinni notkun, en um þrjár milljónir manna nýta sér lestarkerfið til þess að komast í vinnuna á hverjum morgni. Fólk er því hvatt til þess að nota venjulegar lestir, ferjur á ánni Thames og reiðhjólin sín.

Þá óttast menn að fótboltaáhugamenn á leið á landsleik Englendinga gegn Andorra á Wembley í kvöld geti lent í verulegum vandræðum en neðanjarðarlestin er Wembley mjög mikilvæg þar sem lítið er um bílastæði við völlinn, sem tekur tugþúsundir í sæti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×