Bannar útgáfu Salinger-stælingar tímabundið Atli Steinn Guðmundsson skrifar 18. júní 2009 07:28 J.D. Salinger. MYND/Planetvideo.com.au
Bandarískur dómstóll hefur lagt tímabundið lögbann við útgáfu bókar sem ætlað er að vera framhald skáldsögunnar The Catcher in the Rye eftir J.D. Salinger. Vísir greindi frá því í byrjun júní að bandaríski rithöfundurinn Jerome David Salinger hefði stefnt öðrum höfundi, J.D. California, sem í raun er sænski rithöfundurinn Fredrik Colting, fyrir að skrifa framhald sögu Salingers þar sem notast er að einhverju leyti við þær sögupersónur sem Salinger skapaði á sínum tíma árið 1951 en þá kom upprunalega bókin út. Dómari úrskurðaði í gær að nýju bókina mætti ekki gefa út næstu tíu daga en þann tíma mun dómarinn nota til að ákveða hvort efni séu til þess að banna útgáfu bókarinnar algjörlega í Bandaríkjunum en það er það sem Salinger fer fram á. Hann er orðinn níræður og hefur haldið sig algjörlega utan sviðsljóssins áratugum saman. Lögmaður sænska rithöfundarins telur ekkert athugavert við að nýja bókin komi út og segir að þótt aðalsöguhetja The Catcher in the Rye, Holden Caulfield, hafi vissulega öðlast frægð og ódauðleika tákni það ekki að hann teljist varinn af höfundarrétti þótt skáldverkið sjálft sé það. Salinger kom ekki fyrir réttinn sjálfur en hann á við veikindi að stríða.
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira