Erlent

Fílharmoníusveit New York flytur tónlist úr Platoon í Víetnam

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Sveitin á æfingu.
Sveitin á æfingu.

Fílharmoníusveit New York-borgar mun halda tónleika í Víetnam í haust og leika þar meðal annars tónverk úr kvikmyndinni Platoon.

Það er ekki eingöngu tónlist úr hinni eftirminnilegu kvikmynd Olivers Stone frá 1986 sem er á efnisskrá sveitarinnar heldur verða þar einnig leikin hefðbundin verk eftir Beethoven og Mozart. Tónleikar sveitarinnar fara fram í Hanoi og hlakkar hljómsveitin alveg sérstaklega til að stíga þar á svið en í borginni er einstaklega rómað tónlistarhús.

Fílharmoníusveit New York ferðast víða og steig meðal annars á svið í Pyongyang, höfuðborg Norður-Kóreu, í fyrra en Hanoi í Víetnam verður 460. borgin sem sveitin kemur fram í á 167 ára ferli sínum. Á næsta ári verða 35 ár liðin frá því að stríðinu í Víetnam lauk og meðal annars af því tilefni mun hljómsveitin velja tónlist úr Platoon á efnisskrá sína.

Þrátt fyrir efnahagsþrengingar hefur sveitin notið nægilegra styrkja og velvildar ýmissa fjársterkra aðila til að fjármagna tónleikaferðalög um víða veröld og ferðast nú sem aldrei fyrr. Stjórnandinn Alan Gilbert hefur enda látið þau orð falla, meðal annars í spjalli við Reuters-fréttastofuna, að hljómsveitin líti á sig sem eins konar sendiherra á tónlistarsviðinu og sé því nánast skylt að leyfa sem flestum þjóðum að njóta tóna sinna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×