Erlent

Flensan til Finnlands

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Staðfest hefur verið að tvö tilfelli svínaflensunnar hafi greinst í Finnlandi og eru það þá sjötta og sjöunda tilfelli flensunnar í Skandinavíu. Ef marka má tölur Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar hafa nú um 4.700 manns í 30 þjóðlöndum greinst með flensuna. Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins heldur því hins vegar fram að tilfellin séu 5.132.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×