Ísraelar segjast farnir frá Gaza 21. janúar 2009 12:41 Ísraelskir hermenn. MYND/AP
Ísraelar segjast hafa lokið brottflutningi allra hermanna sinna frá Gaza ströndinni. Eyðileggingin er óskapleg. Ísraelar höfðu flutt flestalla sína hermenn frá Gaza ströndinni áður en Barack Obama sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna. Fréttaskýrendur telja að þeir hafi vilja forðast spennu í upphafi samskipta sinna við hinn nýja forseta. Ísraelar lýstu yfir einhliða vopnahléi á ströndinni í síðustu viku. Hamas samtökin sögðu þá að þau myndu gefa þeim vikufrest til að flytja hermenn sína á brott og ekki grípa til neinna hernaðaraðgerða á meðan. Egyptar fara nú fyrir alþjóðlegum hópi sem reynir að koma á varanlegu vopnahléi á Gaza ströndinni. Hamas liðar og aðrir Palestínumenn hafa svosem í nógu að snúast þótt þeir berjist ekki. Eyðileggingin eftir 22 daga árásir Ísraela er skelfileg og ljóst að það mun taka bæði langan tíma og mikið fé að endurreisa þúsundir húsa sem voru annaðhvort lögð í rúst eða mikið skemmd. Gangurinn á þeirri uppbyggingu á sjálfsagt eftir að vera enn eitt bitbein Ísraela og Hamas. Samtökin hafa krafist þess að landamæri verði opnuð til þess að hægt verði að flytja byggingarefni og aðrar nauðsynjar til strandarinnar. Ísraelar munu ef að líkum lætur setja þau skilyrði fyrir opnun landamæranna að eldflaugaárásum verði hætt.
Mest lesið Vaktin: Maduro handtekinn eftir árás á Venesúela Erlent Rennibrautinni lokað eftir fjölda óhappa Innlent Alvarlegt bílslys á Biskupstungnabraut Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í 35 prósentum Innlent Nafn konunnar sem lést á Hvolsvelli Innlent Íslenskur maður lést í Úkraínu Innlent Bandaríkin sprengja í höfuðborg Venesúela Erlent Eldur við flugvöll á Grænlandi Erlent Fjölskyldur lýsa martraðarkenndri bið Erlent Dularfullt bleikt slím veldur ugg á Tasmaníu Erlent Fleiri fréttir Pylsuhundur tók að sér fimm gríslinga Rekstraraðilar grunaðir um manndráp af gáleysi Dularfullt bleikt slím veldur ugg á Tasmaníu Fjölskyldur lýsa martraðarkenndri bið Vaktin: Maduro handtekinn eftir árás á Venesúela Bandaríkin sprengja í höfuðborg Venesúela Eldur við flugvöll á Grænlandi Selenskí skipar nýjan starfsmannastjóra í kjölfar spillingarmáls Sprenging eftir að gestir opnuðu út Íranir óttist „Sýrlandsvæðingu“ Vinna með yfirvöldum í níu löndum að bera kennsl á látna Fyrsta fórnarlambið nafngreint Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Barist á götum úti í Íran fimmta daginn í röð Segjast hafa sviðsett aftöku og hirt verðlaunaféð af Rússum Fimm daga þjóðarsorg lýst yfir í Sviss Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Sór embættiseiðinn á niðurlagðri neðanjarðarlestarstöð Kirkja í Amsterdam alelda Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Dótturdóttir JFK er látin Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka „Sannur Finni“ fær hæli í Rússlandi Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Hvetur ESB til að svara refsiaðgerðunum Bandaríkjanna fullum hálsi Þrítugasta árásin á bát meintra smyglara TikTok-áskorun leiddi til banafalls af útvarpsmastri Blóðbaðið í El Fasher: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Sjá meira