Erlent

Eton-skólanum lokað vegna svínaflensu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Frá Eton.
Frá Eton. MYND/Telegraph

Hinn virti breski einkaskóli Eton verður lokaður næstu vikuna eftir að einn nemenda hans greindist með svínaflensu. Lokunin er framlenging á svokölluðu miðannarfríi en heilbrigðisyfirvöld ákváðu að þetta væri heppilegasta ráðstöfunin á meðan kannað væri hvaðan nemandinn hefði náð sér í veiruna. Hann er ekki alvarlega veikur, enda flensan tiltölulega væg í Evrópu, en ráðlegt þótti að fylgja samt sem áður öryggisreglum farsóttarfræðinga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×