Lýtaaðgerð fyrir atvinnuviðtalið Atli Steinn Guðmundsson skrifar 8. apríl 2009 07:23 Undir hnífinn. Sá sem þarna liggur er hugsanlega á leið beint í atvinnuviðtal úr aðgerðinni. MYND/Reuters
Bandaríkjamenn eru farnir að leggja á sig lýtaaðgerðir til að líta betur út í atvinnuviðtölum og ná þannig forskoti á aðra. Það er ljóst að virkilega er tekið að harðna á dalnum þegar menn eru farnir að leggjast undir hnífinn fyrir atvinnuviðtöl og myndu margir ef til vill segja að þar þættu sér nú tíðkast hin breiðari spjótin. Þetta er þó sá raunveruleiki sem blasir við atvinnuþyrstum Bandaríkjamönnum sem nú gera bókstaflega allt til að koma sér í vinnu. Jeff Grabow er tæplega sextugur Los Angeles-búi sem hefur starfað við markaðssetningu tónlistar. Þar, eins og annars staðar, hafa hlutirnir þó gengið frekar hægt undanfarið og nú sér Grabow fram á að lenda fyrr eða síðar í atvinnuviðtali. Hann eyddi því 17.000 dollurum í andlitslyftingu sem hann vonar að lyfti um leið líkunum á vinnu. Lýtalæknir Grabows segir þetta ekkert einsdæmi. Fólk vilji virðast yngra og ferskara þegar það fer í viðtal. Í því ástandi sem nú ríki sé ekki lengur nóg fyrir fólk að treysta á reynslu sína, menntun og hæfileika heldur þurfi það helst að auki að hafa andlit á við barnsrass. Þetta styður nýleg könnun samtaka amerískra lýtalækna en þar sögðust 13 prósent þátttakenda myndu gangast undir aðgerð fyrir atvinnuviðtalið.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira