Erlent

Tilraunakjarnorkusprenging fordæmd

Íbúar suður-kóresku höfuðborgarinnar Seoul mótmæla kjarnorkuvígvæðingartilburðum norðanmanna í gær. 
fréttablaðið/ap
Íbúar suður-kóresku höfuðborgarinnar Seoul mótmæla kjarnorkuvígvæðingartilburðum norðanmanna í gær. fréttablaðið/ap

Norður-Kóreustjórn lýsti því yfir í gær að hún hefði látið í tilraunaskyni sprengja öfluga kjarnorkusprengju neðanjarðar, mun öflugri en þá sem hún lét sprengja árið 2006.

Tilraunasprenging kommúnistastjórnar í Pyongyang er ávísun á að hin alþjóðlega deila um kjarnorku- og eldflaugavígvæðingaráætlun hennar magnist um allan helming.

Í tilkynningu stjórnarinnar, sem ríkisfréttastofan KCNA birti, segir að framkvæmd hafi verið ný tilraunasprenging kjarnorkusprengju neðanjarðar, „sem lið í aðgerðum til að efla kjarnorkufælingarmátt til sjálfsvarnar“.

Rússneska varnarmálaráðuneytið staðfesti að kjarnorkusprenging hefði átt sér stað neðanjarðar í norðausturhluta Norður-Kóreu kl. 9.54 að staðartíma (kl. 00.54 að íslenskum tíma) í gærmorgun. Sérfræðingar ráðuneytisins giska á að afl sprengjunnar hafi verið á bilinu tíu til tuttugu kílótonn, sem er sambærilegt afli sprengjanna sem Bandaríkjaher sprengdi yfir Hiroshima og Nagasaki árið 1945. Nokkrum stundum síðar sendi norður-kóreski herinn þrjár skammdrægar eldflaugar á loft í tilraunaskyni. Samkvæmt samþykkt öryggisráðs SÞ er Norður-Kóreumönnum bannað að gera nokkrar tilraunir sem tengjast langdrægri eldflaugatækni.

Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði tilraunirnar „skýlaust brot“ á samþykktum öryggisráðsins og alþjóðalögum, sem ekki væri til annars fallið en að einangra Norður-Kóreu enn frekar.

Jafnvel Kínastjórn, hefðbundinn bandamaður Norður-Kóreu, sagðist „algerlega andsnúin“ þessum tilraunum, en fram til þessa hafa kínverskir ráðamenn farið mjög varlega í að gagnrýna Pyongyang-stjórnina.

Það hvernig Norður-Kóreumenn bjóða stórveldum heimsins birginn eykur um allan helming á spennuna í deilunni um kjarnorkuáætlun þeirra.

Á síðustu tveimur mánuðum hafa Norður-Kóreumenn skotið langdrægri tilraunaeldflaug yfir Japan, hætt þátttöku í alþjóðlegum viðræðum um kjarnorkumál og hrakið eftirlitsmenn úr landi, keyrt á ný upp kjarnorkuver sem áður stóð til að rífa, og varað við því að þeir myndu láta verða af tilraunakjarnorkusprengingum og tilraunum með fleiri langdrægar eldflaugar sem geta borið kjarnorkuvopn.

audunn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×