Hvað er eldsneytisfærslufræðingur? Atli Steinn Guðmundsson skrifar 8. apríl 2009 08:15 Svarið við spurningunni sem varpað er fram í fyrirsögn er einfaldlega starfsmaður á bensínstöð. MYND/Baltimore Sun
Nýstárlegum heitum yfir gamalgróin störf er ætlað að laða fólk í atvinnuleit að þeim, eftir því sem markaðsrannsóknarfyrirtækið OnePoll hefur fundið út. Menntastofnunarnærringarráðgjafi og framlínuviðskiptastuðningsfulltrúi. Hvaða fólk er þetta eiginlega? Jú, sá fyrri er starfsmaður í skólamötuneyti en hinn símadama. Þessir uppskrúfuðu starfstitlar og margir fleiri eru að mati breska markaðsrannsóknarfyrirtækisins OnePoll ekkert nema brella vinnuveitenda til að laða almenning að störfum sem á tíðum hefur reynst erfitt að manna, jafnvel þegar atvinnuleysi herjar sem aldrei fyrr á almúgann. OnePoll lagðist í fjögurra mánaða rannsóknarvinnu við að safna saman starfstitlum frá fólki á vinnumarkaði, greina merkingu þeirra og kanna hvert starfssvið viðkomandi væri. Það var þá sem þeir uppgötvuðu meðal annars að fjölmiðladreifingarfulltrúi ber út blöð og fæðuhreinlætistæknir annast uppvaskið á næsta veitingahúsi. Talsmaður OnePoll segir að uppfinningasemin sé að keyra úr hófi fram þessa dagana. Sumir titlanna hafi verið á sveimi í nokkur ár en nýir streymi nú fram sem aldrei fyrr og spyrja megi hvort viðkomandi starfsmaður sé eitthvað ánægðari í vinnunni. Er þjóðvegaumhverfisfræðingur sáttari en götusópari þótt þar fari einn og sami maðurinn? Verðugt umhugsunarefni yfir páskana.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira