Spielberg bannar mynd af sér í háskólabæklingi Atli Steinn Guðmundsson skrifar 9. janúar 2009 08:20 Spielberg. MYND/Smh.com.au
Leikstjórinn Steven Spielberg hefur bannað háskóla í Wales að nota mynd af sér til að auglýsa námskeið. Skólanum barst bréf frá lögfræðingum leikstjórans góðkunna þar sem þess var farið á leit að mynd af honum yrði fjarlægð úr bæklingi sem auglýsir námskeið í skapandi skrifum. Stjórn skólans brást skjótt við og fargaði öllu upplagi bæklingsins, að frátöldu því sem þegar hafði verið dreift. Talsmaður skólans sagði að þarna hefði verið um fljótfærnisleg vinnubrögð að ræða en með Spielberg hefði verið gerð tilraun til að tengja efni námskeiðsins meðal annars við gerð kvikmyndahandrita. Hann sagði skólann hafa sent Spielberg persónulega bréf og beðið forláts en sjálfur hefði hann ekki grænan grun um hvernig leikstjóranum hefði borist vitneskja um myndina og bæklinginn þvert yfir höf og álfur. „Ég get þó ekki neitað því að það gleður mig hvað markaðsaðferðir okkar eru langdrægar," sagði talsmaðurinn að skilnaði. Steven Spielberg er með áhrifamestu mönnum í Hollywood og eru eigur hans metnar á tvo milljarða dollara. Nýjasta verkefni hans ku vera kvikmynd um belgísku teiknimyndapersónuna Tinna sem að líkindum sprettur fram á tjaldið á næsta ári.
Mest lesið „Ég læt ekki stilla mér svona upp við vegg“ Innlent Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Erlent Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Erlent Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Erlent Tilkynnt um alblóðugan mann á gangi í miðborginni Innlent Vara við að erlendir aðilar gætu náð yfirráðum yfir íslenskum sjávarútvegi Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Fleiri fréttir Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Sjá meira