Erlent

Reyndust ekki í flokki róttækra múslima

Svo virðist sem tveir farþegar sem voru um borð í Air France þotunni sem fórst yfir Atlantshafi í síðustu viku hafi ekki verið á lista yfir róttæka múslima, líkt og komið hefur fram í fréttum í dag.

Fregnirnar voru bornar til baka síðar í dag. Mistökin áttu sér stað vegna þess að nöfn þeirra tveggja farþega voru þau sömu og nöfn manna sem eru á lista yfir róttæka múslima. Hinsvegar mun ekki vera um sömu menn að ræða en það kom í ljós þegar fæðingardagar farþeganna voru bornir saman við róttæku nafna þeirra.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×