Erlent

Páfi býður kínverskum kaþólikkum að snúa heim

Óli Tynes skrifar

Benedikt páfi heimsótti í dag klaustrið Monte Cassino á Ítalíu. Það var lagt nánast í rúst í hörðum bardögum í síðari heimsstyrjöldinni. Páfi notaði þetta tækifæri til þess að minnast á kaþólikka í Kína.

Árið 1951 neyddu kínversk stjórnvöld kaþólska þegna sína til þess að slíta öll tengsl við Páfagarð. Talið er að í Kína játi um tólf milljónir manna kaþólska trú.

Kirkjur eru að vísu leyfðar í Kína en þær eru undir ströngu eftirliti stjórnvalda. Margir kaþólikkar kjósa að koma saman einhversstaðar annarsstaðar til bænahalds. Páfa líkar þetta miður vel.

Í predikun sinni hvatti hann kínverska kaþólikka til þess að endurnýja tengslin við Páfagarð.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Benedikt hvetur kínverska kaþólikka til þess að snúa sér aftur til Rómar, við lítinn fögnuð stjórnvalda í þvísa landi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×