Erlent

Bandaríkin nálgast jafnvægi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Jafnvægi er að komast á bandarískt efnahagslíf eftir erfiðasta krepputímabil í áratugi. Þetta sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti þegar hann ávarpaði fjáröflunarsamkomu Demókrataflokksins í gær. Hann sagði stjórn sína hafa lyft grettistaki við að snúa óþróuninni við á fyrstu fjórum starfsmánuðunum og bætti því við að ný stjórn hefði ekki náð öðrum eins upphafsárangri síðan Franklin Roosevelt settist í forsetastólinn árið 1933. Obama sagði þó gríðarlegt verk enn fyrir höndum ætti viðunandi árangur að nást.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×