Erlent

Mótmæli við húsnæðisuppboð í New York

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Mikið er um það í Bandaríkjunum að fólk sé borið út úr húsum sínum vegna skulda. Þar með telst skuldin líka niður fallin, ólíkt því sem tíðkast á Íslandi.
Mikið er um það í Bandaríkjunum að fólk sé borið út úr húsum sínum vegna skulda. Þar með telst skuldin líka niður fallin, ólíkt því sem tíðkast á Íslandi.
Hópur mótmælenda lét í sér heyra við uppboð í New York í gær þar sem verið var að bjóða upp íbúðarhúsnæði sem eigendurnir höfðu verið bornir út úr vegna vangoldinna húsnæðisskulda. Mótmælendurnir vöktu athygli á því að bankarnir, sem bæru í raun ábyrgð á óförum margra húsnæðiseigenda, fengju milljarðaaðstoð frá hinu opinbera en fólk væri hins vegar borið út af heimilum sínum á meðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×