Erlent

Tamílar viðurkenna fall leiðtoga síns

Skæðir bardagar hafa veirð undanfarið á milli Tamíla og hersins á Sri Lanka.
Skæðir bardagar hafa veirð undanfarið á milli Tamíla og hersins á Sri Lanka.
Uppreisnarmenn Tamíl tígra á Sri Lanka hafa í fyrsta skipti viðurkenn fall leiðtoga þeirra, Velupillai Prabhakaran. Í yfirlýsingu frá tígrunum segir að hinn „óviðjafnanlegi leiðtogi" þeirra hafi látist og þeir hafi verið í sorg undanfarna viku. Talsmaður hópsins sagði BBC einnig að nú myndu þeir hætta öllu ofbeldi í baráttunni gegn réttindum tígranna.

Herinn á Sri Lanka birti í síðustu viku myndir að Prabhakaran sem sagðar voru af líki hans eftir að hann féll. Í fyrrnefndri yfirlýsingu segir að leiðtoginn hafi fallið í bardaga við herinn á sunnudaginn í síðustu viku.

Uppreisnarmennirnir þurftu að gefast upp eftir að herinn hafði gert árás á þá í norð-austur hluta eyjarinnar. Ósigur þeirra batta enda á 26 ára baráttu tamíla fyrir aðskildu landsvæði á Sri Lanka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×