Erlent

Átök í Sómalíu

Sómalskir Íslamistar sækja hart að ríkisstjórninni.
Sómalskir Íslamistar sækja hart að ríkisstjórninni.

Sómalskir andspyrnuhermenn hafa náð tökum á bænum Jowhar sem er norðan við Mogadishu, höfuðborg Sómalíu. Talið er að sjö manns hafi látist í átökunum, þar af þrír óbreyttir borgarar.

Hópurinn samanstendur af íslömskum harðlínumönnum og heitir Al-Shabab.

Það var á sunnudaginn sem hópurinn réðist inn í bæinn. Þeir gerðu fyrst atlögu að fangelsinu í bænum og frelsuðu fangana. Í kjölfarið urðu hörð átök á milli Al-Shabab hópsins við stjórnarhermenn.

Bærinn þykir bráðnauðsynlegur í hernaðarlegum skilningi. Meðal annars vegna þess að á rigningatímum verður að fara um bæinn vilji menn fara í miðborg Mogadishu.

Bærin er að auki heimabær forseta landsins, Sheik Sharif Sheik Ahmed. Ríkisstjórn hans hefur hinsvegar verið að missa völdin hægt og bítandi. Fréttamaður BBC sem þekkir til á svæðinu segir landmissinn vera alvarlegt áfall fyrir ríkisstjórnina.

Mikið hefur verið um sjórán við Sómalíu eins og hefur verið greint frá í fréttum. Fjölþjóðlegur herfloti reyni að vernda skip sem þar eiga leið hjá, með misjöfnum árangri þó.

Samkvæmt heimildum BBC þá er sómalska ríkisstjórnin að reyna verða sér út um mannafla til þess að ná bænum aftur á sitt vald.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×