Svipaðar hugmyndir hústökufólks í Bretlandi 17. apríl 2009 20:01 Hústökufólki í Bretlandi
Hústökufólkið á Vatnsstíg var ekki að finna upp hjólið þegar þau tóku yfir hús númer fjögur við litla hrifningu eigandans. Hústakan endaði með áhlaupi lögreglunnar sem handtók rúmlega tuttugu manns og beitti meðal annars piparúða. Í nóvember á síðasta ári kom upp svipað mál í Bretlandi þegar hópur svokallaðra stjórnleysingja flutti inn í 6 milljón punda glæsivillu í Lundúnum. Fólkið sem var án atvinnu eignaðist á svipstundu nágranna sem voru margir hverjir þeir ríkustu og snobbuðust í landinu. Þrátt fyrir þá staðreynd að Vatnsstígur fjögur verði seint stimplaður sem glæsivilla er margt líkt með hugmyndum og aðgerðum hópanna. Hópurinn í Bretlandi var þó nokkuð leynilegri í aðgerðum sínum. Þau klæddu sig í verkamannafatnað og settu upp stillans og fóru þannig inn í byggingu. Fólkið á svölum hússins með svartan fána líkt og fólkið á Vatnsstíg flaggaði í vikunni. Fólkið sagðist sjálft ætla að greiða fyrir rafmagnið en ætlun þeirra var alls ekki að skemma húsið. Þvert á móti ætluðu þau að laga til og koma á laggirnar starfsemi en húsið hafði verið tómt nokkuð lengi. „Hver sem er má koma hingað," sagði einn úr hópnum við The Independent á síðasta ári. „Við viljum að fólk noti þetta sem vinnurými. Fólk getur komið hingað, og verið þar sem það vill," sagði sami aðili en fólkið fæst nokkuð við listmálun. Húsið var í eigu auðjöfursins Vincent Tchenguiz þar til árið 2005, en hann er bróðir Robert Tchenguiz sem hefur verið nokkuð í fréttum upp á síðkastið. Húsnæðið hafði verið autt síðan þá eftir að skrifstofa Vincent flutti í stærra húsnæði. Hugmyndir fólksins virðast rýma nokkuð við þær hugmyndir sem stjórnleysingjarnir við Vatnsstíg töluðu um í fjölmiðlum. Þar var ætlunin að opna félagsmiðstöð og gera eitthvað skemmtilegt fyrir fólk í sumar.
Mest lesið Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Svona gekk að flytja vindmyllurnar Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent „Við erum bara að mótmæla“ Innlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Erlent „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Innlent Fleiri fréttir Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Sjá meira