Enski boltinn

Ballack á Chelsea-bekknum og Louis Saha í byrjunarliði Everton

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Ballack byrjar á bekknum á Wembley í dag.
Michael Ballack byrjar á bekknum á Wembley í dag. Mynd/AFP

Guus Hiddink, stjóri Chelsea, hefur ákveðið að láta Þjóðverjann Michael Ballack byrja á bekknum í bikaúrslitaleiknum á Wembley í dag en Jon Mikel Obi er á miðjunni í hans stað. Louis Saha er í byrjunarliði Everton sem kemur einnig á óvart. Byrjunarliðin eru klár.

Byrjunarlið Everton: Tim Howard, Tony Hibbert, Joseph Yobo, Joleon Lescott, Leighton Baines, Leon Osman, Phil Neville, Steven Pienaar, Tim Cahill, Marouane Fellaini, Louis Saha.

Varamenn: Nash, Castillo, Vaughan, Jacobsen, Rodwell, Gosling, Baxter.

Byrjunarlið Chelsea: Petr Cech , José Bosingwa, Alex, John Terry, Ashley Cole, Mickaël Essien, John Obi Mikel, Frank Lampard, Nicolas Anelka, Didier Drogba, Florent Malouda.

Varamenn: Hilario, Ivanovic, Di Santo, Ballack, Kalou, Belletti, Mancienne.

Bikarúrslitaleikurinn hefst klukkan 14.00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þetta er 128. bikaúrslitaleikurinn frá upphafi og sá 75. sem er spilaður á Wembley. Chelsea vann enska bikarinn síðast 2007 en Everton hefur ekki unnið hann síðan 1995.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×