Innlent

Fimmtán þúsund manns á handverkshátíð

Handverkshátíðin við Hrafnagilsskóla fór fram í sautjánda sinn um helgina við metaðsókn.
Handverkshátíðin við Hrafnagilsskóla fór fram í sautjánda sinn um helgina við metaðsókn.
„Það má segja að við séum búin að slá öll aðsóknarmet, en í gær höfðu yfir fimmtán þúsund manns sótt hátíðina heim,“ segir Dóróthea Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Handverkshátíðarinnar við Hrafnagilsskóla. Hátíðin var haldin í sautjánda sinn í ár, en hún hófst á föstudag og lýkur í dag. „Það er varla auður blettur á tjaldstæðinu hérna og stemningin er svakalega góð, 20 stiga hiti og sól,“ útskýrir Dóróthea og segir öll störf í kringum hátíðina unnin í sjálfboðavinnu.

Dagskráin undanfarna daga hefur verið fjölbreytt að vanda. Guðrún Ásgerður Steingrímsdóttir var valin handverkskona ársins 2009, en frá því á föstudag hafa verið daglegar tískusýningar, haldnir fyrirlestrar og námskeið, krambúð var opin og yfir eitt hundrað manns sýndu handverk sitt svo eitthvað sé nefnt.

„Hönnunarsamkeppni um nýsköpun í ullarvörum var í tengslum við sýninguna og þá þótti okkur við hæfi að sýna rúning á ullinni. Við fengum því Birgi Arason rúningsmann til að sýna vélrúning daglega og tvær konur í sveitinni hafa setið inni í réttinni til að sýna hvernig bandið verður til úr ullinni,“ segir Dóróthea, ánægð með hátíðarhöldin. - ag



Fleiri fréttir

Sjá meira


×