Erlent

Fimm féllu í sprengjuárás í Tyrklandi

Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands.
Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands.
Þrír óbreyttir borgarar og tveir héraðslögreglumenn féllu þegar sprengja sprakk við vegarkant í suðausturhluta Tyrklands seinnipartinn í dag. Uppreisnarsveitir Kúrda eru taldar bera ábyrgð á ódæðinu en talsmenn Kúrda neita því að vera viðriðnir sprengjutilræðið og segja að tyrkneskir þjóðernissinnar beri ábyrgð á því.

Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, fordæmdi árásina.

Meira en 30 þúsund manns hafa verið drepnir frá því Kúrdar hófu að berjast fyrir sjálfstæði sínu þar sem þeir eru í meirihluta í suðausturhluta Tyrklands árið 1984.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×