Erlent

Sultarólin hert í sumarfríinu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Rúmlega helmingur Bandaríkjamanna hefur úr mun minna fé að moða í sumaleyfinu í ár en í fyrra.

Það var ferðavefsetur America on Line sem tók sig til og kannaði stöðu bandarísks almennings með tilliti til yfirvofandi sumarfría ársins 2009 og satt best að segja hefur hún oft verið betri. Fimmtíu og fjögur prósent þeirra sem leitað var til segjast hafa mun minna fé milli handanna fyrir sumarfríið nú en í fyrra og heil 66 prósent ætla sér að ferðast innanlands í sumar.

Síðarnefnda hlutfallið er reyndar óbreytt frá því í fyrra og vekur það nokkra furðu hjá America on Line þar sem dollarinn hefur sótt nokkuð í sig veðrið undanfarið og ætti samkvæmt því að ýta undir ferðalög erlendis. Menn eru þó heimakærir hvað sem því líður en hins vegar segist 61 prósent ætla að leita sérstaklega eftir afsláttum og tilboðum hjá ferðaþjónustuaðilum og 58 prósent munu sætta sig við að komast á áfangastað með fleiri en einu flugi reynist það ódýrara en beint flug.

Það er sum sé haldið grimmt um budduna og auðvitað engin furða. Til dæmis er það nýlunda að yfir 40 prósent sumarferðalanga hyggist leggja greiðslukortinu og nota reiðufé í fríinu. Þetta er sparnaðaraðgerð en þátttakendur í könnuninni játa að auðvelt sé að rétta fram kortið og gráta seinna á meðan reiðufé gefi betri tilfinningu fyrir því hve miklu er eytt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×