Sagður linur gegn spillingu 17. júlí 2009 01:15 Kosningar nálgast í kabúl Íbúar höfuðborgarinnar við vegg þakin myndum af frambjóðendum. fréttablaðið/AP
Andstæðingar Hamids Karzaí, forseta Afganistans, leggja nú allt kapp á að hann nái ekki hreinum meirihluta í forsetakosningunum, sem haldnar verða 20. ágúst. Takist það þarf að halda aðra umferð, þar sem tveir efstu frambjóðendurnir verða í kjöri. Gagnrýnendur saka hann um að hafa engan veginn staðið sig í baráttu gegn spillingu í stjórnkerfinu og að stjórn hans geti af litlu státað á flestum sviðum. Erlendir stjórnarerindrekar í Kabúl taka undir þetta og segja hann sífellt koma sér undan því að taka erfiðar ákvarðanir, sem þarf til að draga bæði úr landlægri spillingu og ofbeldinu sem ekkert lát er á. Fjörutíu mótframbjóðendur, þar af tvær konur, eiga þó litla möguleika gegn honum nema þeim takist að koma í veg fyrir sigur hans í fyrstu umferð. Erfitt er að meta líkurnar á sigri, því fáar marktækar skoðanakannanir hafa verið gerðar. Í maí var þó gerð könnun sem spáir honum 35 prósentum atkvæða, en næstur honum með sjö prósent atkvæða kæmi Abdullah Abdullah, sem er utanríkisráðherra í stjórn Karzaí. Undanfarnar vikur hefur Karzaí þó unnið af miklu afli til að auka fylgi sitt, meðal annars með samningum við héraðsleiðtoga sem geta haft mikil áhrif á afstöðu almennings, hver í sínu héraði.- gb
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira