Sara Palin segir af sér Kristín María Birgisdóttir skrifar 4. júlí 2009 12:24
Sarah Palin, fyrrum varaforseta-frambjóðandi repúblikana, hefur sagt af sér sem fylkisstjóri Alaska. Afsögnin kemur eins og blaut tuska í andlitið á samflokksmönnum hennar vestra en sextán mánuðir eru eftir af kjörtímabili hennar. Sarah Palin gaf út í kjölfar afsagnar sinnar að hún hygðist ekki bjóða sig fram í embættið á ný. Einu skýringarnar sem hún gaf voru að henni fyndist tilgangslaust að hanga í embætti fyrst hún hefði ákveðið að bjóða sig ekki fram að kjörtímabilinu loknu. Margir repúblikanar höfðu spáð að Palin myndi bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna árið 2012. Þá hafa samflokksmenn hennar sagt að afsögnin geri út um pólitískan feril hennar og benda á að ef þú ráðir ekki við að vera fylkisstjóri þá séu möguleikar á að verða forseti enn minni. Aðrir telja að útreiðin sem hún fékk í kosningabaráttunni í fyrra sé ástæða þess að hún segi nú skilið við stjórnmálin, jafnvel fyrir fullt og allt. Palin lætur af störfum 25. júlí næstkomandi.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira