Obama er víst Bandaríkjamaður Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. júlí 2009 08:24
Hvíta húsið gaf í gær út yfirlýsingu um að Barack Obama væri bandarískur ríkisborgari. Það var gert vegna þrálátra yfirlýsinga þrýstihóps, sem ekki er þeirrar skoðunar. Robert Gibbs, talsmaður Hvíta hússins, virtist nokkuð ergilegur á blaðamannafundi í gær þegar hann var spurður enn einu sinni hvað væri hæft í málflutningi hóps samsæriskenningasinna sem kalla sig birthers í þá átt að Barack Obama Bandaríkjaforseti væri alls ekki hæfur til að gegna því embætti þar sem hann væri ekki bandarískur ríkisborgari. Hópurinn staðhæfir að Obama sé fæddur í Kenýa en ekki á Hawaii og því fái það alls ekki staðist að hann sé forseti. Gibbs sagðist svo sem ekki hafa nein vísindaleg gögn undir höndum sem færðu sönnur á fæðingarstað forsetans en hins vegar hefði hann séð fæðingarvottorð Obama sem gefið væri út af heilbrigðisráðuneyti Hawaii og þar stæði einfaldlega að maðurinn hefði fæðst í Honolulu klukkan 7:24 að kvöldi 4. ágúst 1961 og þyrfti venjulegt fólk ekki frekari sannanir fyrir fæðingarstað einhvers. Gibbs sagði réttast að birta vottorðið á Netinu til að kveða niður efasemdarraddirnar. Birthers-hópurinn var hávær í kosningabaráttunni í haust en núna í gúrkutíð fjölmiðla yfir hásumarið, sem Bandaríkjamenn kalla „silly season", hefur þeim aftur vaxið ásmegin og notfæra sér fréttaskortinn til að koma sér á framfæri. Eðlilegt fólk léti sér ef til vill nægja að fara í sumarfrí.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira