Erlent

Segir lækni Jacksons hafa gefið honum Diprivan

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Dr. Conrad Murray.
Dr. Conrad Murray.

Doktor Conrad Murray, einkalæknir Michaels Jackson heitins, gaf söngvaranum svæfingarlyfið Diprivan um það bil sólarhring áður en hann lést og mun það hafa dregið hann til dauða. Þetta segir ónafngreindur heimildamaður, sem þekkir til rannsóknarinnar, í viðtali við CNN. Lögmenn Murrays hafna þessu alfarið og segja áburðinn ekki svara verðann, skjólstæðingur þeirra hefði aldrei gefið Jackson lyf sem á einhvern hátt gætu verið heilsu hans hættuleg. Lögregla hefur yfirheyrt Murray tvisvar sinnum síðan Jackson lést 25. júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×