Samkomulagið veitir ríkissjóði skjól í sjö ár Heimir Már Pétursson skrifar 6. júní 2009 18:57
Ríkisstjórnin telur að 33 til 170 milljarðar gætu fallið á ríkissjóð eftir sjö ár vegna Icesave skuldbindinga í Bretlandi og Hollandi sem samtals eru upp á 660 milljarða króna. Leiðtogar stjórnarflokkanna segja mikilvægt að samkomulagið skapi ríkissjóði algert skjól í sjö ár en á þeim tíma eru lán vegna Icesave afborgunarlaus. Forsætisráðherra og fjármálaráðherra kynntu samkomulag Íslendinga við Breta og Hollendinga á fréttamannafundi síðdegis. Í samkomulaginu er lagt til grundvallar að eignir Landsbankans standi á næstu sjö árum undir 75 prósentum af Icesave skuldbindingunum. Það þýðir að 170 milljarðar gætu fallið á ríkissjóð að þeim tíma liðnum. Breskir endurskoðendur telja hins vegar að eignir bankans standi undir allt að 95 prósentum af skuldbindingum en þá myndu 33 milljarðar falla á ríkið að sjö árum liðnum. En hver sem talan verður yrði hún greidd á átta árum þaðan í frá. Þá er ekki tekið tillit til vaxta sem eru 5,5 prósent og leiðtogar stjórnarflokkanna segja með þeim bestu sem í boði séu. Þá verða hryðjuverkalögin og frystingu eigna Landsbankans aflétt hinn 15. júní. Mun ekki hafa áhrif á lánshæfismat ríkissjóðs Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að þetta samkomulag muni ekki hafa nein áhrif á lánshæfismat ríkissjóðs og stöðu hans næstu sjö árin. Það komi sér vel á þeim erfiðu tímum sem nú séu. Þetta er vegna þess að það er Tryggingasjóður innstæðueigenda gefur út skuldabréfið og ábyrgð ríkissjóðs á því tekur ekki gildi fyrr en árið 2016. Steingrímur segir að samkomulagið muni ekki hafa áhrif á gengi krónunnar. Hins vegar muni skuldbinding Íslendinga lækka ef og þegar gengið styrkist. Margir telja að Íslendingar hefðu átt að neita að borga og láta reyna á átt dómstólaleiðina.Ísland hefði líklega tapað fyrir dómstólum Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að halda verði til haga að Íslendingar hafi verið einir um þá skoðun að þeim bæri ekki að standa við þessar skuldbindingar vegna kerfishruns. Það sé því líklegt að Íslendingar hefðu tapað slíku máli fyrir dómstólum. Steingrímur segir að Íslendingar hefðu átt fáa skoðanabræður í því hvort þeir ættu einhvern annan möguleika í stöðunni, en semja við Breta og Hollendinga um niðurstöðuna. Samkomulagið kynnt á Alþingi eftir helgi Niðurstaðan verður kynnt Alþingi með skýrslu á mánudag og Alþingi þarf að lokum að samþykkja ríkisábyrgð vegna samningsins. Leiðtogar stjórnarflokkanna telja að þingmenn beggja flokka muni greiða götu málsins í þinginu. „Ég held að þetta séu ágætis samningar miðað við þá stöðu sem við vorum í ef við horfum á þetta í heild," sagði Jóhanna. Það væri afar mikilvægt að ekki þurfi að greiða af lánunum í sjö ár þegar þjóðin verði búin að rétta úr kútnum. Nú þegar eru til 50 milljarðar króna í sjóðum Landsbankans sem strax fara til afborgunar á skuldbindingunum.
Tengdar fréttir Vildi peninga í skiptum fyrir þrjú stig í landsleiknum Stuðningsmenn hollenska landsliðsins í knattspyrnu hafa lífgað upp á miðbæ Reykjavíkur með skemmtilegum hætti í allan dag en landsleikur Íslands og Hollands hefst klukkan korter í sjö á Laugardalsvelli. 6. júní 2009 17:14 Samkomulagið mikilvægur áfangi í endurreisn Íslands Samkomulag um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu er mikilvægur áfangi við endurreisn íslensks efnahagskerfis og trausts Íslands á alþjóðavettvangi. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, á fundi með blaðamönnum í stjórnarráðinu í dag. 6. júní 2009 16:54 Sigmundur Davíð: Íslendingar seldir í ánauð Formaður Framsóknarflokksins segir að verið sé að selja Íslendinga í ánauð með samkomulagi sem undirritað var í nótt um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu. Hann segir samninginn vera ógn við sjálfstæði Íslands. „Þetta er rosalegt. Ég er búinn að vera hálfmiður minn frá því að þetta var kynnt í gærmorgun,“ segir formaðurinn. 6. júní 2009 17:15 Vextir af Icesave-láni 35 milljarðar á ári Íslenska ríkið mun ábyrgjast um 640 milljarða króna skuld til Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi, samkvæmt samkomulagi sem náðst hefur við bresk yfirvöld. Lánið mun bera 5,5 prósenta vexti á ári, en hvorki þarf að greiða afborganir né vexti næstu sjö ár. 6. júní 2009 05:15 Framsóknarþingmaður: Stjórnin er að svíkja þjóðina Eygló Harðardóttir, þingmaður og ritari Framsóknarflokksins, segir að með samkomulagi sínu við Breta og Hollendina um Icesave reikningana sé ríkisstjórnin að svíkja þjóðina. Hún segir að Samfylkingin hafi aldrei haft vilja til að kanna lagastöðu Íslands í málinu. „Ég tel þetta samkomulag vera mikil svik,“ segir þingmaðurinn. 6. júní 2009 14:31 Jóhanna og Steingrímur boða til blaðamannafundar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa boðað til blaðamannafundar um lausn Icesavedeilunnar. Fundurinn hefst klukkan fjögur. 6. júní 2009 15:06 Ísland frjálst undan hryðjuverkalögum fyrir þjóðhátíð Hryðjuverkalögum Breta gegn Íslendingum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verða aflétt eftir hálfan mánuð, samkvæmt samkomulagi íslensku samninganefndarinnar vegna Icesave við Breta og Hollendinga. Samningaviðræðum lauk um miðnætti í nótt. 6. júní 2009 10:01 Ekki lagalegar forsendur fyrir samkomulaginu um Icesave Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, er ósáttur við að stjórnvöld hafi ákveðið að greiða Icesave reikningana. Fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að hann telji ekki lagalegar forsendur vera fyrir samkomulagi um greiðslurnar. 6. júní 2009 13:24 12 milljónir króna á fjölskyldu Höfuðstóll Icesave lánsins að viðbættum vöxtum myndi duga til að reka Háskóla Íslands í heila öld og sjö árum betur. Deilt niður á fjölskyldur landsins nemur upphæðin tólf milljónum króna á hverja vísitölufjölskyldu. 6. júní 2009 18:35 Bretar fagna Icesave samkomulaginu Bresk stjórnvöld fagna Icesave samkomulaginu sem nú hefur náðst. Vilji Íslendinga, til að ábyrgjast skuldbindingar sínar og endurgreiða reikningseigendum, þykir sérstakt fagnaðarefni samkvæmt fréttavefnum BBV. 6. júní 2009 15:01 Samkomulagið betra en fyrri drög Samkomulag það sem tókst í gærkvöldi um Icesave skuldbindingar Íslendinga er mun hagstæðara en drög að samkomulagi sem lágu fyrir í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde. Hryðjuverkalögum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verður aflétt eftir tæpan hálfan mánuð. 6. júní 2009 12:01 Gjaldþrot Seðlabankans stærra mál en Icesave Gjaldþrot Seðlabankans er enn stærra mál en Icesave. Vaxtakjörin á Icesave láninu gera það þó að verkum að Icesave er í fyrsta sæti þegar kemur að álögum á þjóðina. Þetta segir Ólafur Arnarson, hagfræðingur. 6. júní 2009 12:19 Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira
Vildi peninga í skiptum fyrir þrjú stig í landsleiknum Stuðningsmenn hollenska landsliðsins í knattspyrnu hafa lífgað upp á miðbæ Reykjavíkur með skemmtilegum hætti í allan dag en landsleikur Íslands og Hollands hefst klukkan korter í sjö á Laugardalsvelli. 6. júní 2009 17:14
Samkomulagið mikilvægur áfangi í endurreisn Íslands Samkomulag um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu er mikilvægur áfangi við endurreisn íslensks efnahagskerfis og trausts Íslands á alþjóðavettvangi. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, og Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, á fundi með blaðamönnum í stjórnarráðinu í dag. 6. júní 2009 16:54
Sigmundur Davíð: Íslendingar seldir í ánauð Formaður Framsóknarflokksins segir að verið sé að selja Íslendinga í ánauð með samkomulagi sem undirritað var í nótt um Icesave skuldbindingarnar svokölluðu. Hann segir samninginn vera ógn við sjálfstæði Íslands. „Þetta er rosalegt. Ég er búinn að vera hálfmiður minn frá því að þetta var kynnt í gærmorgun,“ segir formaðurinn. 6. júní 2009 17:15
Vextir af Icesave-láni 35 milljarðar á ári Íslenska ríkið mun ábyrgjast um 640 milljarða króna skuld til Breta vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi, samkvæmt samkomulagi sem náðst hefur við bresk yfirvöld. Lánið mun bera 5,5 prósenta vexti á ári, en hvorki þarf að greiða afborganir né vexti næstu sjö ár. 6. júní 2009 05:15
Framsóknarþingmaður: Stjórnin er að svíkja þjóðina Eygló Harðardóttir, þingmaður og ritari Framsóknarflokksins, segir að með samkomulagi sínu við Breta og Hollendina um Icesave reikningana sé ríkisstjórnin að svíkja þjóðina. Hún segir að Samfylkingin hafi aldrei haft vilja til að kanna lagastöðu Íslands í málinu. „Ég tel þetta samkomulag vera mikil svik,“ segir þingmaðurinn. 6. júní 2009 14:31
Jóhanna og Steingrímur boða til blaðamannafundar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafa boðað til blaðamannafundar um lausn Icesavedeilunnar. Fundurinn hefst klukkan fjögur. 6. júní 2009 15:06
Ísland frjálst undan hryðjuverkalögum fyrir þjóðhátíð Hryðjuverkalögum Breta gegn Íslendingum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verða aflétt eftir hálfan mánuð, samkvæmt samkomulagi íslensku samninganefndarinnar vegna Icesave við Breta og Hollendinga. Samningaviðræðum lauk um miðnætti í nótt. 6. júní 2009 10:01
Ekki lagalegar forsendur fyrir samkomulaginu um Icesave Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor við Háskóla Íslands, er ósáttur við að stjórnvöld hafi ákveðið að greiða Icesave reikningana. Fram kom í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins að hann telji ekki lagalegar forsendur vera fyrir samkomulagi um greiðslurnar. 6. júní 2009 13:24
12 milljónir króna á fjölskyldu Höfuðstóll Icesave lánsins að viðbættum vöxtum myndi duga til að reka Háskóla Íslands í heila öld og sjö árum betur. Deilt niður á fjölskyldur landsins nemur upphæðin tólf milljónum króna á hverja vísitölufjölskyldu. 6. júní 2009 18:35
Bretar fagna Icesave samkomulaginu Bresk stjórnvöld fagna Icesave samkomulaginu sem nú hefur náðst. Vilji Íslendinga, til að ábyrgjast skuldbindingar sínar og endurgreiða reikningseigendum, þykir sérstakt fagnaðarefni samkvæmt fréttavefnum BBV. 6. júní 2009 15:01
Samkomulagið betra en fyrri drög Samkomulag það sem tókst í gærkvöldi um Icesave skuldbindingar Íslendinga er mun hagstæðara en drög að samkomulagi sem lágu fyrir í tíð ríkisstjórnar Geirs H. Haarde. Hryðjuverkalögum og frystingu eigna Landsbankans í Bretlandi verður aflétt eftir tæpan hálfan mánuð. 6. júní 2009 12:01
Gjaldþrot Seðlabankans stærra mál en Icesave Gjaldþrot Seðlabankans er enn stærra mál en Icesave. Vaxtakjörin á Icesave láninu gera það þó að verkum að Icesave er í fyrsta sæti þegar kemur að álögum á þjóðina. Þetta segir Ólafur Arnarson, hagfræðingur. 6. júní 2009 12:19