Erlent

Læknirinn Tiller borinn til grafar

Eiginkona Tillers við athöfnina í dag.
Eiginkona Tillers við athöfnina í dag. Mynd/AP

George Tiller, læknir sem þekktur var fyrir að framkvæma fóstureyðingar á konum sem gengu með mjög þroskuð fóstur, var borinn til grafar í dag. Hundruð syrgjendur minntust Tillers í borginni Wichita í Kansasfylki en hann var myrtur fyrir viku. Tveir andstæðingar fóstureyðinga voru handteknir í dag þegar athöfnin fór fram.

 

Tiller var skotinn til bana við guðsþjónustu á sunnudagsmorgun. Morðinginn flúði vettvang en var handtekinn síðar um daginn.

Mótmælendur fóstureyðinga höfðu lengi fylgst með Tiller, en læknastofa hans er ein fárra í heiminum þar sem fóstri er eytt eftir að kona hefur gengið með í 21 viku.

Árið 1991 hópuðust þúsundir aðgerðasinna til heimaborgar Tillers til að taka þátt í mótmælum sem einkenndust af borgaralegri óhlýðni og fjöldahandtökum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×