Erlent

Með töskur úr kókaíni í flug

Ung kona var handtekin í Chile fyrr í vikunni fyrir fíkniefnasmygl. Konan ætlaði að fara um borð í flugvél á leið frá Chile til Spánar með tvær ferðatöskur, sem voru gerðar úr kókaíni.

Haft var eftir lögreglumanni á Santiago-flugvelli að eiturlyfin hafi ekki verið falin í töskunum heldur hafi töskurnar sjálfar verið gerðar úr blöndu af kókaíni og fleiri efnum. Með réttum aðferðum hefði svo verið hægt að aðskilja kókaínið frá hinum efnunum. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×