Erlent

Tóku að sér og ala upp unga

Tvær samkynhneigðar mörgæsir hafa komið unga á legg og ala hann nú upp í dýragarðinum í Bremerhaven í Þýskalandi.

Mörgæsirnar eru báðar karlkyns og pöruðu sig saman fyrir nokkru, að sögn starfsfólks dýragarðsins. Þegar líffræðilegir foreldrar, annað mörgæsapar í dýragarðinum, höfnuðu eggi sínu kom starfsfólkið egginu fyrir hjá karlmörgæsunum tveim sem tóku það að sér og nú er unginn orðinn fjögurra vikna gamall og dafnar vel.- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×