Erlent

Lík úr flugslysinu fundin

Brasilíski flugherinn fann í dag lík tveggja karlmanna sem fórust með farþegaþotu Air France aðfaranótt mánudagsins síðasta. Brak úr vélinni sem og persónulegir munir fundust einnig í dag.

228 fórust í slysinu en flugvélin var á leiðinni frá Rio de Janeiro í Brasilíu til Parísar í Frakklandi. Einn íslenskur ríkisborgari var um borð.

Leitarskilyrði á svæðinu hafa verið afar undanfarna daga vegna slæms veðurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×