Erlent

Fangelsisyfirvöld gerðu mistök

Blaðamannafundur Guy Bonomo,, faðir annars franska námsmannsins sem myrtur var í Bretlandi í fyrra, ræðir við fjölmiðla eftir að dómur var upp kveðinn í gær. Fræettablaðið/AP
Blaðamannafundur Guy Bonomo,, faðir annars franska námsmannsins sem myrtur var í Bretlandi í fyrra, ræðir við fjölmiðla eftir að dómur var upp kveðinn í gær. Fræettablaðið/AP

Fangelsismálayfirvöld í Bretlandi hafa viðurkennt að hafa gert mistök sem áttu hlut í því að tveir franskir námsmenn voru myrtir á hrottalegan hátt í London í fyrra. Annar morðingjanna var á skilorði og átti að vera undir miklu eftirliti. Tveir breskir menn voru í gær fundnir sekir um morðin hrottalegu.

Gabriel Ferez og Laurent Bonomo fundust látnir í íbúð sinni í London fyrir um ári. Þeir höfðu verið bundnir og pyntaðir og stungnir 244 sinnum. Morðingjarnir tveir höfðu upphaflega ætlað að ræna mennina.- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×