Erlent

Fundu óvænt risastórt eldfjall

Vísindamenn hafa við rannsóknir á eðli flóðbylgja uppgötvað risavaxið neðansjávareldfjall undan vesturströnd Indónesíu. Fjallið er um 4.600 metrar á hæð og fimmtíu kílómetrar að þvermáli. „Þetta var algjörlega óvænt," sagði einn vísindamannanna í gær.

Ekki er vitað hvort eldfjallið er virkt, en vísindamaðurinn sagði að ef svo væri og það gysi væri það „mjög, mjög hættulegt".

Fjallið er um 330 kílómetra vestur af eynni Súmötru og tindur þess er um 1.380 metra undir yfirborði sjávar.- sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×